Um KMÍ
Á döfinni

6.9.2019

Katrín Björgvinsdóttir leikstjóri og Mie Skjoldemose handritshöfundur vinna til verðlauna á Nordic Talents

Katrín Björgvinsdóttir leikstjóri og Mie Skjoldemose handritshöfundur hlutu sérstaka viðurkenningu dómnefndar á Nordic Talents í gær fyrir mynd sína Dronning Ingrid, en myndin var lokaverkefni þeirra í Danska kvikmyndaskólanum. Fimmtán verkefni voru valin í keppni þar sem nýútskrifaðir nemar í kvikmyndagerð kynntu verkefni sín. 

Nordic Talents er viðburður sem haldinn er á vegum Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins og Danska kvikmyndaskólans. Tilgangurinn með viðburðinum er fyrst og fremst að skapa vettvang þar sem hægt er að styrkja tengslanet meðal fagfólks á norðurlöndunum.

Hér má finna nánari upplýsingar um Nordic Talents 2019.