Um KMÍ
Á döfinni

30.12.2019

Kjartan Sveinsson vinnur til verðlauna fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Bergmál

Tónlistarmaðurinn Kjartan Sveinsson vann til tónskáldaverðlaunanna á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Les Arcs fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Bergmál eftir Rúnar Rúnarsson. Hátíðin fór fram dagana 14. - 21. desember í Frakklandi.  

Síðan Bergmál var heimsfrumsýnd á aðalkeppni kvikmyndahátíðarinnar í Locarno í haust hefur myndin ferðast víða á milli hátíða og hlotið lof gagrýnenda. Tónskáldaverðlaun Kjartans eru fjórðu alþjóðlegu verðlaunin sem veitt eru fyrir myndina. 

Bergmál er í almennum sýningum þessa dagana í Noregi, Hollandi, Belgíu og Sviss, en sýningar í fleiri löndum munu fylgja í kjölfarið og byrjar myndin þann 1. janúar í Frakklandi. Að auki er myndin enn í sýningu hér á landi.