Um KMÍ
Á döfinni

23.10.2019

Les Arcs og KMÍ styrkja framleiðendur til þátttöku á Les Arcs markaðnum - umsóknarfrestur til 4. nóvember

Samframleiðslumarkaður kvikmyndahátíðarinnar Les Arcs ætlar í samstarfi við Kvikmyndamiðstöð Íslands að styrkja tvo til þrjá framleiðendur til þátttöku á markaðnum sem fram fer 14. - 17. desember næstkomandi. Umsóknarfrestur rennur út 4. nóvember.

Stuðningurinn felst í aðgangspassa að markaðnum, fundum, ráðstefnum o.fl. Einnig þrjár gistinætur og akstur til og frá flugvellinum í Genf en þátttakendur þurfa sjálfir að greiða annan ferðakostnað.

Að þessu sinni er sérstaklega horft til kvenframleiðenda sem hafa áhuga á að efla tengslanet sitt og eru þær því sérstaklega hvattar til að sækja um.

Umsókn um stuðninginn skal vera á ensku með ferilskrá og upplýsingar um verk í vinnslu. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu/þekkingu af alþjóðlegri samframleiðslu.

Nánari upplýsingar veitir Sigurrós Hilmarsdóttir framleiðslustjóri. Sótt er um með því að senda tölvupóst á umsoknir@kvikmyndamidstod.is