Um KMÍ
Á döfinni

5.5.2020

LevelK selur heimildamyndina A Song Called Hate á heimsvísu

Kvikmyndatímaritið Variety greinir frá því að heimildamyndin A Song Called Hate sem fjallar um Eurovisongjörning hljómsveitarinnar Hatara er komin með dreifingarsamning hjá danska fyrirtækinu LevelK. 

Leikstjóri og framleiðandi myndarinnar er Anna Hildur Hildibrandsdóttir en hún fylgdi hópnum til Ísrael og Palestínu í fyrra ásamt Baldvini Vernharðssyni kvikmyndatökumanni. Myndin er framleidd af Tattarrattat í samstarfi við RÚV.

Frumsýna átti myndina á CPH:DOX heimildamyndahátíðinni í Kaupmannahöfn í mars síðastliðinn en ekki varð af því vegna lokunar landamæra. Ráðgert er að hún verði frumsýnd í haust.

Lagið Hatrið mun sigra var framlag Íslands til Eurovision sem fram fór í Tel Aviv árið 2019 eins og frægt er orðið. Mikill alþjóðlegur fjölmiðlaáhugi skapaðist í kringum yfirlýsingar Hatarahópsins, bæði í aðdraganda lokakvöldisins og á kvöldinu sjálfu þar sem táknrænn gjörningur þeirra náði til yfir 200 milljóna áhorfenda.

A Song Called Hate fjallar um listina sem felst í því að taka afstöðu og spyr spurninga um hlutverk listarinnar í pólitísku samhengi. Í myndinni kynnumst við aðdragandanum og sjáum hvað gerðist á bak við tjöldin á ferðum hópsins.

Myndin var tekin upp í Reykjavík, London, Madrid, Ísrael og Palestínu. Frumsamin kvikmyndatónlist við myndina er eftir Margréti Rán úr Vök en Bergur Þórisson hljóðblandaði og útfærði með henni. Öll eftirvinnsla var unnin hjá Trickshot.