Um KMÍ
Á döfinni

14.8.2018

Lof mér að falla heimsfrumsýnd á Toronto kvikmyndahátíðinni – Viktoría og To Plant a Flag einnig sýndar

Lof mér að falla, nýjasta kvikmynd Baldvins Z, verður heimsfrumsýnd á hinni virtu alþjóðlegu kvikmyndahátíð í Toronto þann 6. september næstkomandi. Myndin verður sýnd í Contemporary World Cinema hluta hátíðarinnar. Þá verður Viktoría, stuttmynd eftir Brúsa Ólason, sýnd í Short Cuts hluta hátíðarinnar, þar sem hún verður frumsýnd alþjóðlega þann 9. september. To Plant a Flag, norsk/íslensk stuttmynd eftir Bobbie Peers, verður sömuleiðis sýnd í Short Cuts hluta hátíðarinnar, þar sem hún verður heimsfrumsýnd þann 8. september. Hátíðin mun fara fram frá 6. - 16. september.

Lof mér að falla segir frá hinni 15 ára Magneu sem kynnist hinni 18 ára Stellu og við það breytist allt. Magnea laðast að hispurslausu lífi Stellu og þróar Magnea sterkar tilfinningar til hennar sem Stella notfærir sér til eigin hagsbóta. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir þær báðar. 12 árum síðar liggja leiðir þeirra óvænt saman og verður uppgjör á milli þeirra óumflýjanlegt.

Myndin verður frumsýnd hérlendis þann 7. september.

https://youtu.be/vpyUWkiWOVk

Baldvin Z leikstýrir Lof mér að falla og skrifar handritið ásamt Birgi Erni Steinarssyni. Myndin er framleidd af Júlíusi Kemp og Ingvari Þórðarsyni fyrir Kvikmyndafélag Íslands og erlendir meðframleiðendur myndarinnar koma frá Finnlandi. Í aðalhlutverkum eru Elín Sif Halldórsdóttir, Eyrún Björk Jakobsdóttir, Þorsteinn Bachmann, Kristín Þóra Haraldsdóttir og Lára Jóhanna Jónsdóttir. Tónlist myndarinnar er samin af Ólafi Arnalds, Jóhann Máni Jóhannsson stýrir kvikmyndatöku og Úlfur Teitur Traustason sér um klippingu.

Viktoría var frumsýnd á Stockfich kvikmyndahátíðinni í mars síðastliðnum og vann þar Sprettfiskinn fyrir bestu stuttmynd. Þátttaka myndarinnar á Toronto hátíðinni er sú fyrsta erlendis og því verður um alþjóðafrumsýningu hennar að ræða.

Viktoria-adalstilla

Söguþráður Viktoríu: Þegar eini starfskrafturinn Viktoríu fær vinnu í Reykjavík þarf hún að takast á við að vera með búskap ein. Tekst henni að halda ættaróðalinu gangandi?

Brúsi Ólason leikstýrir og skrifar handritið að Viktoríu. Myndin er framleidd af Kára Úlfssyni og Maggie Briggs fyrir Kvarki Films og meðframleidd af Inga Óskarssyni. Í aðalhlutvkeri er Ingrid Jónsdóttir. Brúsi Ólason klippir myndina, Margrét Vala Guðmundsdóttir stýrir kvikmyndatöku og Daði Freyr Pétursson semur tónlist myndarinnar.

To Plant a Flag gerist árið 1966 og segir frá tveimur seinheppnum bandarískum geimförum sem eru staddir á Íslandi í þjálfunarbúðum á vegum NASA. Í þjálfun sinni komast þeir fljótt að því að landið virðist vera fjandsamlegra en sjálft tunglið.

Toplantaflag_01

Bobbie Peers leikstýrir og skrifar handritið að To Plant a Flag. Í aðalhlutverkum eru Jason Schwartzman og Jake Johnson ásamt Ingvari E. Sigurðssyni. Myndin er framleidd af Ruben Thorkildsen og Henrik Hofstad fyrir norska framleiðslufyrirtækið Ape & Bjørn og Skúla Fr. Malmquist fyrir Zik Zak kvikmyndir. Jakob Ingimundarson stýrir kvikmyndatöku myndarinnar, sem var öll tekin upp á Íslandi.