Um KMÍ
Á döfinni

23.2.2023

Skjaldborg opnar fyrir umsóknir

Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda verður haldin á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina 26.-29. maí. Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir verk til frumsýningar og verk í vinnslu til kynningar á hátíðinni. 

Fyrri umsóknarfrestur er 8. mars 2023 og seinni þann 30. mars 2023. Umsóknarform og frekari upplýsingar eru aðgengilegar á vef hátíðarinnar.

Vakin er athygli á því að hægt er að sækja um með myndir á eftirvinnslustigi með nýjustu útgáfu verksins auk lýsingar á því hvar verkið er statt og áætlun um verklok. Skjaldborg frumsýnir íslenskar heimildamyndir og hefur það að markmiði að styðja við íslenska heimildamyndagerð. Hægt er að sækja um í tveimur flokkum, frumsýning á heimildamynd eða verk í vinnslu. 

Þær íslensku heimildamyndir sem frumsýndar eru á hátíðinni keppa um verðlaunin Einarinn, áhorfendaverðlaun sem hafa verið veitt frá upphafi, og dómnefndarverðlaunin Ljóskastarann.

Gjaldgeng til frumsýninga 2023 eru verk sem uppfylla eftirfarandi skilyrði: 

  • Heimildamyndir sem ekki hafa verið sýndar opinberlega á Íslandi og munu ekki verða sýndar á Íslandi áður en Skjaldborg 2023 er lokið.
  • Heimildamyndir sem teljast íslensk framleiðsla.
Athugið að hægt er að sækja um fyrir erlendar myndir sem fjalla um íslensk málefni en þær myndir eru ekki gjaldgengar í keppni.