Um KMÍ
Á döfinni

12.2.2024

Skjaldborg opnar fyrir umsóknir

Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda verður haldin á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina 17.-20. maí. Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir verk til frumsýningar og verk í vinnslu til kynningar á hátíðinni. Fyrri umsóknarfrestur er 23. febrúar 2024 og seinni þann 15. mars 2024. Umsóknarform er aðgengilegt á vef hátíðarinnar.

Vakin er athygli á því að hægt er að sækja um með hlekkjum á myndir á eftirvinnslustigi með nýjustu útgáfu verksins auk lýsingar á því hvar verkið er statt og áætlun um verklok í athugasemdum. Vakin er athygli á að skila þarf verkum í endanlegri mynd í tæka tíð fyrir hátíð.

Skjaldborg frumsýnir íslenskar heimildamyndir og hefur það að markmiði að styðja við íslenska heimildamyndagerð. Hægt er að sækja um í tveimur flokkum, frumsýning á heimildamynd eða verk í vinnslu.

Þær íslensku heimildamyndir sem frumsýndar eru á hátíðinni keppa um verðlaunin Einarinn, áhorfendaverðlaun sem hafa verið veitt frá upphafi, og dómnefndarverðlaunin Ljóskastarann.

Gjaldgeng til frumsýninga 2024 eru verk sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:

- Heimildamyndir sem ekki hafa verið sýndar opinberlega á Íslandi og munu ekki verða sýndar á Íslandi áður en Skjaldborg 2024 er lokið.

- Heimildamyndir sem teljast íslensk framleiðsla.

- ATH! Hægt er að sækja um fyrir erlendar myndir sem fjalla um íslensk málefni en þær myndir eru ekki gjaldgengar í keppni.

Nánari upplýsingar á www.filmfreeway.com/Skjaldborg

www.skjaldborg.is

www.facebook.com/skjaldborg.hatid.islenskra.heimildamynda

www.instagram.com/skjaldborg_heimildamyndahatid/