Um KMÍ
Á döfinni

16.2.2024

Tilnefningar til Kvikmyndaverðlauna Eddunnar 2024

Tilnefningar til Kvikmyndaverðlauna Eddunnar 2024 hafa verið gerðar opinberar.

Verðlaunin hafa verið veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni frá árinu 1999. Hátíðin í ár markar þáttaskil þar sem kvikmynda- og sjónvarpsverðlaununum hefur verið skipt upp og verða Kvikmyndaverðlaun Eddunnar 2024 afhent 13. apríl næstkomandi. Sjónvarpsverðlaunin verða afhent á haustmánuðum.

Á hátíðinni í apríl verða veitt samtals 20 verðlaun til kvikmyndaverka sem frumsýnd voru á tímabilinu 1. janúar 2023 til 31. desember 2023.

Þá verða heiðursverðlaun ÍKSA veitt ásamt tveimur nýjum verðlaunum. Erlend kvikmynd ársins verður verðlaunuð og Uppgötvun ársins en þau eru veitt einstaklingi sem ekki hefur hlotið tilnefningu áður í viðkomandi fagverðlaunaflokki en hefur vakið sérstaka athygli fyrir framúrskarandi framlag á árinu.

Til kvikmyndaverðlauna Eddunnar í ár voru send inn alls 39 verk og 132 innsendingar til fagverðlauna. Heimildamyndir voru 8, heimildastuttmyndir 7, kvikmyndir 7 og stuttmyndir 11. 8 valnefndir, 41 einstaklingur sat í valnefndunum fyrir hina 20 verðlaunaflokka. KPMG hefur yfirumsjón með kosningu og talningu atkvæða.

Kvikmyndaverðlaun Eddunnar verða veitt 13. apríl í beinni útsendingu á RÚV.

Tilnefningar eru sem hér segir:

BARNA- OG UNGLINGAMYND ÁRSINS

Konni

Sætur (Felt Cute)

Þið kannist við…

 

 

ERLEND KVIKMYND ÁRSINS

Anatomy of a Fall (Fallið er hátt)

Fallen Leaves

Killers of the Flower Moon

Oppenheimer

Past Lives


HEIMILDAMYND ÁRSINS

Heimaleikurinn

Skuld

Smoke Sauna Sisterhood


HEIMILDASTUTTMYND ÁRSINS

Konni

Super Soldier

Uppskrift: lífið eftir dauðann


KVIKMYND ÁRSINS

Á ferð með mömmu

Tilverur

Villibráð


STUTTMYND ÁRSINS

Dunhagi 11

Sorg etur hjarta

Sætur (Felt Cute)


BRELLUR ÁRSINS

Davíð Jón Ögmundsson, Dragos Vilcu, Árni Gestur Sigfússon & Rob Tasker fyrir Napóleonsskjölin

Jean-Michel Boublil, Jörundur Rafn Arnarson fyrir Northern Comfort

Atli Þór Einarsson fyrir Óráð


BÚNINGAR ÁRSINS

Helga Rós V. Hannam fyrir Á ferð með mömmu

Helga Rós V. Hannam fyrir Kulda

Arndís Ey fyrir Tilverur


GERVI ÁRSINS

Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Á ferð með mömmu

Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Kulda

Guðbjörg Huldís Kristinsdóttir fyrir Villibráð


HANDRIT ÁRSINS

Hilmar Oddsson fyrir Á ferð með mömmu

Erlingur Óttar Thoroddsen fyrir Kulda

Tyrfingur Tyrfingsson og Elsa María Jakobsdóttir fyrir Villibráð


HLJÓÐ ÁRSINS

Matis Rei fyrir Á ferð með mömmu

Björn Viktorsson fyrir Northern Comfort

Huldar Freyr Arnarson fyrir Smoke Sauna Sisterhood


KLIPPING ÁRSINS

Gunnar B. Guðbjörnsson og Kristján Loðmfjörð fyrir Napóleonsskjölin

Hendrik Mägar fyrir Smoke Sauna Sisterhood

Ivor Šonje fyrir Tilverur


KVIKMYNDATAKA ÁRSINS

Óttar Guðnason fyrir Á ferð með mömmu

Árni Filippusson fyrir Napóleonsskjölin

Ants Tammik fyrir Smoke Sauna Sisterhood


LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI

Þröstur Leó Gunnarsson fyrir Á ferð með mömmu

Þröstur Leó Gunnarsson fyrir Tilverur

Gísli Örn Garðarsson fyrir Villibráð


LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI

Ólafur Darri Ólafsson fyrir Napóleonsskjölin

Hilmir Snær Guðnason fyrir Villibráð

Björn Hlynur Haraldsson fyrir Villibráð


LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI

Kristbjörg Kjeld fyrir Á ferð með mömmu

Elín Hall fyrir Kulda

Vivian Ólafsdóttir fyrir Napóleonsskjölin


LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI

Halldóra Geirharðsdóttir fyrir Kulda

Selma Björnsdóttir fyrir Kulda

Nína Dögg Filippusdóttir fyrir Villibráð


LEIKMYND ÁRSINS

Heimir Sverrisson fyrir Napóleonsskjölin

Hulda Helgadóttir, Eggert Ketilsson fyrir Northern Comfort

Heimir Sverrisson fyrir Villibráð


LEIKSTJÓRI ÁRSINS

Hilmar Oddsson fyrir Á ferð með mömmu

Anna Hints fyrir Smoke Sauna Sisterhood

Elsa María Jakobsdóttir fyrir Villibráð


TÓNLIST ÁRSINS

Tönu Kõrvits fyrir Á ferð með mömmu

Daníel Bjarnason fyrir Northern Comfort

Eðvarð Egilsson fyrir Smoke Sauna Sisterhood