Um KMÍ
Á döfinni

22.1.2021

Opnað fyr­ir inn­send­ing­ar til Edd­unn­ar 2021

Opnað hefur verið fyrir innsendingar á kvikmynda- og sjónvarpsverkum fyrir Edduna 2021. Gjaldgeng eru verk frumsýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2020.

Innsendingaferlið er að fullu rafrænt á nýrri innsendingarvef Eddunnar.

Framleiðslufyrirtæki fylla þar út upplýsingar um verk, greiða innsendingargjald og hlaða verkum upp á slóð ÍKSA: http://innsending.eddan.is/

Á stjórnarfundi Eddunnar sl. haust var tekin ákvörðun um breytingar á fjölda tilnefninga fyrir hver verðlaun. Þrjú verk verða tilnefnd í hverjum flokki, burtséð frá fjölda innsendinga. Ennfremur var ákveðið að valnefndir komi saman og starfi í formi dómnefndar.

Gjald fyrir innsent verk í aðalflokk Eddunar er kr 25.000 og innsending í flokk fagverðlauna kostar kr 5.000 (verð eru án vsk).

Frestur til að senda inn verk rennur út á miðnætti þriðjudaginn 11. febrúar 2021 og strax í kjölfarið hefja valnefndir Eddunnar störf. Stefnt er að tilkynningu tilnefninga í lok mars og að Edduverðlaunin verði veitt á vormánuðum.

Sjá nánar um reglur Eddunnar hér.