Um KMÍ
Á döfinni

9.4.2019

Samstarf norrænna teiknimyndaframleiðanda á Annecy

Í ár munu norrænir teiknimyndaframleiðendur hafa samstarf um að reka sérstakan bás á MIFA í Annecy 10.-15. júní 2019. 

Markaðurinn fer fram í Annecy, Frakklandi samhliða Annecy alþjóðlegu teiknimyndahátíðinni þar sem sýndar verða yfir 200 teiknimyndir.

Íslenskir framleiðendur hafa möguleika á að nýta sér básinn til þess að kynna sig og verkefnin sín.

Einnig er möguleiki á að fá afslátt af þátttökugjöldum.

Áhugasamir hafið samband við Hauk Sigurjónsson haukur@gunhil.com sem situr í norræna framkvæmdahópnum.