Um KMÍ
Á döfinni

23.2.2017

Sheffield Doc/Fest óskar eftir umsóknum

Heimildamyndahátíðin Sheffield Doc/Fest óskar eftir umsóknum. Hátíðin mun fara fram frá 9. – 14. júní í Sheffield á Englandi. Umsóknarfrestur rennur út 23. febrúar.

Heimildamyndir af öllu tagi, þar á meðal gagnvirk og sýndarveruleika verkefni, eru gjaldgeng.

Einnig er hægt að sækja um fyrir Alternate Realities Commission og markaðina MeetMarket og Alternate Realities Market. Umsóknarfrestur fyrir markaðina rennur út 16. mars.

Nánari upplýsingar um hvernig skuli sækja um er að finna á heimasíðu Sheffield Doc/Fest.