Um KMÍ
Á döfinni

1.11.2019

Stefnumót um kvikmyndanám á háskólastigi

Listaháskóli Íslands býður til samtals um kvikmyndanám á háskólastigi þriðjudaginn 5. nóvember kl. 14-18 í húsakynnum LHÍ Laugarnesi.

Stefnumótið er liður í undirbúningi að stofnun kvikmyndadeildar við Listaháskólann og er þróað í samtali við hagaðila. Unnið er í samráði við fagvettvanginn í kvikmyndagerð og menntun. Verkefnið er þróunarverkefni styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Listaháskólinn hvetur alla þá sem hafa áhuga á kvikmyndagerð og menntun að skrá sig til leiks.

Hægt að skrá sig hér.  


Dagskrá

14:00-15:30 Stutt erindi um kvikmyndanám

Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor LHÍ

Karólína Stefánsdóttir, verkefnastjóri LHÍ

Katherine Dieckmann, handritshöfundur og leikstjóri við Columbia University School of the Arts

Mette Damgaard-Sørensen listrænn stjórnandi New Danish Screen, DFI

Ben Gibson, skólastjóri DFFB í Berlín

Ása Helga Hjörleifsdóttir, leikstjóri og handritshöfundur

15:30-16:00 Kaffi

16:00-17:30 Borðavinna – umræður um kvikmyndanám á háskólastigi.