Um KMÍ
Á döfinni

25.11.2019

Tryggð vinnur til verðlauna í Flórens

Kvikmynd Ásthildar Kjartansdóttur, Tryggð, var verðlaunuð á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Cinema e Donne í Flórens síðastliðinn föstudag. Verðlaunin sem bera heitið „Sigillo della pace“ eða friðarverðlaunin voru veitt af borgarstjóra Flórensborgar, Dario Nardella. 

Í viðurkenningu borgarstjóra segir:

Myndin fjallar um brýnt málefni í landi þar sem jafnrétti er í
hávegum haft. Málið snýst nefnilega ekki eingöngu um lagasetningu
og góðan ásetning heldur um menningu og (tilvistar-) venjur sem menn
standa frammi fyrir en takast oft á um.

Þessi fallega kvikmynd Ásthildar Kjartansdóttur sýnir þetta og með
snjallri og skarpri nálgun sinni og mikilli mannlegri næmni boðar
verk Ásthildar að sniðganga ekki hagsmunaárekstra heldur að vinna
að sáttum.

Mynd frá verðlaunaafhendingunni í Flórens:

Nánari upplýsingar um alþjóðlegu kvikmyndahátíðina Cinema e Donne í Flórens má finna á heimasíðu hennar.