Um KMÍ
Á döfinni

30.3.2021

Verðlaunahátíð ungra áhorfenda verður haldin stafrænt dagana 21. - 25 apríl

 

Evrópska kvikmynda Akademían og Kvikmyndmiðstöð Íslands bjóða öllum börnum á aldrinum 12 - 14 ára að taka þátt í kvikmyndahátíð sem meðlimir í dómnefnd.

Kvikmyndahátíðin nefnist Verðlaunahátíð ungra áhorfenda (e. Young Audience Award ) og er haldin samtímis víðsvegar um Evrópu eða hátt í 40 löndum þann 25. apríl.

Myndirnar sem verða sýndar á Verðlaunahátíð ungra áhorfenda voru valdar af dómnefnd sem skipuð var fimm krökkum á aldrinum 12 – 14 ára.

Markmið hátíðarinnar er að bjóða upp á einstakt tækifæri fyrir börn til þess að kynnast evrópskri kvikmyndamenningu og að sýna myndir sem endurspegla raunveruleika ungmenna um alla Evrópu. Eins er stefnt að því að kveikja áhuga barnanna á evrópskum sögum, fólki, menningu og hvetja til samkenndar, skilnings og umburðarlyndis.

Hátíðin er fyrir alla krakka á aldrinum 12 – 14 ára og er aðgangur ókeypis. 

Myndirnar sem verða sýndar eru:

 TheCrossing-1-1- The Crossing

Árið er 1942, fjórir krakkar eru á flótta. Sara og Daníel hafa þurft að fela sig í kjallaranum hjá vinum sínum Ottó og Gerði vegna uppruna síns. Ef þau finnast verða foreldar Gerðar og Ottós handteknir. Fjórmenningarnir ákveða því að fara í hættuför, flýja þýsku hermennina sem hafa leitað þeirra og fara til Svíþjóðar. Þau lenda í allskonar hættum á leiðinni en fá hjálp úr ýmsum áttum. Myndin er byggð á bók eftir Maja Lunde sem byggir á sannsögulegum atburðum. Leikstjóri: Johanne Helgeland.

Still_5

Pinocchio

Klassíska sagan um Gosa snýr aftur í nýrri leikinni kvikmynd eftir ítalska leikstjórann Matteo Garrone. Óskarsverðlaunahafinn Roberto Benigni leikur Jafet, gamlan trésmið sem býr til strengjabrúðu úr tré, nefnir hana Gosa og elur upp eins og son sinn. Einn daginn eins og töfrum líkast fer brúðan að tala, ganga, hlaupa og borða eins og hver annar strákur. Gosi á hinsvegar erfitt með að vera prúður og lendir auðveldlega á villigötum. Hann heldur á vit vafasamra ævintýra þar sem hann er meðal annars plataður, honum stolið og hann eltur af ræningjum. Tryggur vinur hans, bláhærða dísin, reynir að fá hann til að sjá að draumur hans um að verða alvöru strákur geti aldrei orðið að veruleika fyrr en Gosi lærir að feta hinn rétta veg.

Wolfwalkers_Photo_0101_Courtesy-of-Apple

Wolfwakers

Lærlingurinn Robyn og veiðimaðurinn faðir hennar halda til Írlands til þess að útrýma síðasta úlfahópnum í landinu. Ferðin tekur óvænta stefnu þegar Robyn vingast við unga stúlku að nafni Meth úr ættflokki sem að sögur herma að breytist í úlfa á nóttunni. Leikstjórar: Tomm Moore og Ross Stewart.