Áhorf á íslenskt sjónvarpsefni 2019

Birtist upphaflega á Klapptré þann 23. janúar 2020 og birt hér með góðfúslegu leyfi ritstjóra.

Hér er listi yfir áhorf á íslenskar bíómyndir, heimildamyndir, stuttmyndir og leikið sjónvarpsefni í sjónvarpi árið 2019.

Um aðferðafræðina

Tölurnar eru byggðar á áhorfsmælingum Gallup sem framkvæmdar eru daglega árið um kring. Birtar eru áhorfstölur í prósentum og fjölda áhorfenda. Á bakvið hvert prósent eru 2.420 manns á aldrinum 12-80 ára. Tölurnar innihalda allt áhorf, þar með talið svokallað hliðrað áhorf (Sarpur, tímaflakk, VOD o.fl.)

Um öll verk gildir að ef verk er endursýnt á árinu er áhorf á fyrstu og aðra sýningu (og fleiri eftir atvikum) lagt saman.

Þegar verk birtist í tveimur þáttum eða fleiri er birt meðaláhorf. Það er reiknað þannig að áhorfstölur hvers þáttar fyrir sig eru lagðar saman og deilt í með fjölda þátta.

Hafa ber í huga að útleggingar mælinga eru mismunandi eftir eðli verka.

ATHUGIÐ: Í fyrsta sinn er er heildaráhorf og meðaláhorf á einstaka efnisliði tekið saman.


Bíómyndir eru (oftast) sýndar í heilu lagi og því er um heildaráhorf að ræða. Þó eru þær í sumum tilfellum sýndar oftar en einu sinni á árinu og þar er því áhorf á báða sýningartíma lagt saman.

Heimildamyndir eru stundum stakar en stundum í þáttaröðum. Gerð er grein fyrir þessu með hvert verk og því ýmist um heildaráhorf eða meðaláhorf á þátt að ræða eftir atvikum.

Leikið sjónvarpsefni er yfirleitt sýnt í nokkrum þáttum og að auki gjarnan endursýnt og því er þar sagt frá meðaláhorfi á þátt.

Stuttmyndir eru sýndar í heilu lagi og því um heildaráhorf að ræða.

Endursýningum á eldri verkum er sleppt.

Einnig er rétt að benda á að sumar tölur eru námundaðar, á það sérstaklega við um verk sem sýnd eru í bútum (með auglýsingahléum) en nokkuð flókið er að finna út hárnákvæmt áhorf á slíkar sýningar. Tölurnar eru þó nærri lagi.

Áhorf á leikið sjónvarpsefni 2019

 HeitiStöðFjöldi þátta Fjöldi sýningaÁhorf   Áhorfendur
Ófærð**RÚV8252.4%134.068
Brot***RÚV1239.2%94.864
Pabbahelgar*RÚV6231.7%76.714
Venjulegt fólkSjónvarps Símans6Ekki vitaðEkki vitaðEkki vitað
Meðaláhorf    103.062 
* Meðaláhorf á þátt, samanlagt áhorf (með endursýningum
** Meðaláhorf á þátt, átta síðustu þættirnir (tveir sýndir 2018)
*** Aðeins einn þáttur sýndur 2019

Áhorf á íslenskar bíómyndir 2019

Heiti  StöðFjöldi þáttaFjöldi sýningaÁhorf Áhorfendur
SumarbörnRÚV1
124.9%60.258
Kona fer í stríðRÚV1124.7%59.774
Andið eðlilegaRÚV 116.1%38.962
Lof mér að fallaRÚV1111.3%27.346
ÞorstiStöð211 0.5%1.210
Heildaráhorf    187.550
Meðaláhorf    37.510


Áhorf á íslenskar heimildamyndir 2019

HeitiStöðFjöldi þáttaFjöldi sýninga ÁhorfÁhorfendur
Ófærð - Á bak við tjöldinRÚV1132%77.440
Á æðruleysinu**RÚV
1228.9%69.938
Fólkið í dalnum** RÚV
1222.5%54.450
Hvað höfum við gert***RÚV
10218.7%45.254
Aldrei of seint**RÚV
1318.4%44.528
UseLess**RÚV
1218.4%44.528
Svona fólk***RÚV
5217.8%43.076
Fyrir alla muni***RÚV
6217.4%42.108
Hans Jónatan - maðurinn sem stal sjálfum sér**RÚV 1317.1%41.382
Saga Mezzoforte**RÚV
2314.2%34.364
Njósnir, lygar og fjölskylduböndRÚV
1113.8%33.396
Hærra, hraðar, lengraRÚV
112.5%30.250
Blindrahundur**RÚV
1211.6%28.072
Borða, rækta, elska**RÚV
1211.4%27.588
Af jörðu ertu kominnRÚV
1110%24.200
GarnRÚV
11 6.6%15.972
Skjól og skartRÚV15.3%12.826
Heildaráhorf

  656.546
Meðaláhorf

  41.000
**Samanlagt áhorf
***Meðaláhorf á þátt, samanlagt áhorf (með endursýningum)


Áhorf á íslenskar suttmyndir 2019

Heiti StöðFjöldi þátta Fjöldi sýningaÁhorf Áhorfendur
UngarRÚV1 1 15.7% 37.994
FótsporRÚV1 1 10.5% 25.410
Tvíliðaleikur RÚV1 1 9.7% 23.474
Málarinn (En maler)RÚV1 1 7.8% 18.876
Heildaráhorf     105.754
Meðaláhorf     26.438


Um KMÍ