Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Brussels óskar eftir umsóknum í Brussels Co-Production Forum
18. apríl
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Brussels óskar eftir umsóknum fyrir samframleiðsluvettvanginn „Brussels Co-Production Forum“ sem fer fram í stafrænu formi dagana 7. og 8. september.
Óskað er eftir umsóknum vegna kvikmyndaverkefna í þróun, en vettvangurinn skiptist í tvo flokka:
Gap Financing Sessions, fyrir evrópska framleiðendur í leit að belgískum minnihlutameðframleiðendum eða fjármögnunaraðilum.
UP: Up-and-coming Producers, fyrir nýja og uppkomandi framleiðendur með sitt fyrsta eða annað verkefni kvikmyndar í fullri lengd í leit að meðframleiðanda eða fjármögnunaraðila.
Umsóknarfrestur er 11. apríl og allar nánari upplýsingar má finna hér.