Um KMÍ
  • 1. júlí

Cinekid hátíðin og Junior Co-production Market óska eftir umsóknum

1. júlí

Cinekid óskar eftir umsóknum fyrir Cinekid hátíðina, Junior Co-production Market og ScreeningClub. Cinekid hátíðin og samhliða hliðardagskrár munu fara fram frá 10. – 16. október í Amsterdam í Hollandi.

Hægt er að sækja um þátttöku á Cinekid hátíðina. Gjaldgengar eru fullkláraðar kvikmyndir, sjónvarpsþættir eða margmiðlunarefni með kvikmynda- eða sjónvarpsívafi. Umsóknarfrestur rennur út 1. júlí.

Þeir sem eru með verkefni í þróun, s.s. kvikmyndir, sjónvarpsþætti eða margmiðlunarefni með kvikmynda- eða sjónvarpsívafi, geta sótt um þátttöku fyrir Junior Co-production Market. Þátttakendur kynna verkefni sín á fundum með sölufulltrúum, dreifingaraðilum, innkaupastjórum, framleiðendum o.fl. Skilyrði fyrir þátttöku er að verkefnunum sé þegar tryggð 10% fjármögnun. Umsóknarfrestur rennur út 1. júlí.

Cinekid hátíðin er ein helsta margmiðlunarhátíð heims fyrir barnaefni og var haldin í fyrsta sinn fyrir rúmum 30 árum. Þar keppa að meðaltali 15 barnakvikmyndir um The Cinekid Lion verðlaunin og hlýtur sigurvegarinn 10.000 evrur.

Allar nánari upplýsingar fyrir umsóknarferlið má finna hér.