Um KMÍ
  • 1. júlí

Cinekid óskar eftir umsóknum

1. júlí

Cinekid óskar eftir umsóknum fyrir Cinekid hátíðina, Junior Co-production Market, ScreeningClub og Cinekid Script LAB. Cinekid hátíðin og samhliða hliðardagskrár munu fara fram frá 19. – 25. október í Amsterdam í Hollandi.

Hægt er að sækja um þátttöku á Cinekid hátíðina. Gjaldgengar eru fullkláraðar kvikmyndir, sjónvarpsþættir eða margmiðlunarefni með kvikmynda- eða sjónvarpsívafi. Umsóknarfrestur rennur út 1. júlí.

Þeir sem eru með verkefni í þróun, s.s. kvikmyndir, sjónvarpsþætti eða margmiðlunarefni með kvikmynda- eða sjónvarpsívafi, geta sótt um þátttöku fyrir Junior Co-production Market. Þátttakendur kynna verkefni sín á fundum með sölufulltrúum, dreifingaraðilum, innkaupastjórum, framleiðendum o.fl. Skilyrði fyrir þátttöku er að verkefnunum sé þegar tryggð 10% fjármögnun. Umsóknarfrestur rennur út 1. júlí.

Cinekid hátíðin er ein helsta margmiðlunarhátíð heims fyrir barnaefni og var haldin í fyrsta sinn fyrir rúmum 30 árum. Þar keppa að meðaltali 15 barnakvikmyndir um The Cinekid Lion verðlaunin og hlýtur sigurvegarinn 10.000 evrur.

Allar nánari upplýsingar fyrir fullkláruð verkefni er að finna hér og allar nánari upplýsingar um verkefni í þróun er að finna hér.