Um KMÍ
  • 6. júlí

CPH:DOX óskar eftir umsóknum fyrir CPH:LAB

6. júlí

CPH:DOX heimildamyndahátíðin óskar eftir umsóknum fyrir CPH:LAB. CPH:LAB er vinnustofa sem er ætluð þróun á hæfileikum heimildamyndagerðarmanna.

Óskað er eftir heimildamyndaverkefnum og aðstandendum þeirra sem eru að leitast eftir því að skoða möguleika stafrænnar tækni í heimildamyndagerð.

Vinnustofan fer fram í stafrænu formi yfir 3 mánaða tímabil, frá október 2021 til janúar 2022 og dagana 23. mars - 1. apríl 2022 þegar CPH:DOX hátíðin á sér stað í Kaupmannahöfn.

Umsóknarfrestur er 6. júlí og allar nánari upplýsingar ásamt umsóknarferli er að finna hér.