Um KMÍ
  • 20. janúar, Kvikmyndamiðstöð Íslands

Hraðall í New York fyrir skapandi greinar

20. janúar

Íslensk sprotafyrirtæki í skapandi greinum eiga kost á að taka þátt í alþjóðlegum hraðli Nordic Innovation House í New York . Umsóknarfrestur er til 20. janúar 2018. 

Kynningarfundur um hraðalinn verður haldinn 12. janúar að Sundagörðum 2 kl. 12. Nánari upplýsingar má finna á facebook viðburði Íslandsstofu.  

Um er að ræða:

  • Námskeið fyrir sprota í skapandi greinum sem haldið er að hluta í Noregi og New York - og stendur yfir á alls 8 mánaða tímabili.      
  • Þriggja mánaða aðstaða í fyrirtækjasetri Nordic Innovation House í New York á tímabilinu.       
  • Aðstoð ráðgjafa, sérfræðinga og mentora.

Á Norðurlöndum er hefð fyrir því að skilgreina skapandi greinar sem eftirtaldar: Arkitektúr, tölvuleikir, hönnun, kvikmyndagerð, bókmenntir, tónlist, auglýsingagerð, prentmiðlar, sjónvarp og útvarp, myndlist og sviðslistir.


Áhersla er lögð á að efla þátttakendur í hraðlinum í sölu, markaðsmálum, uppbyggingu mörkunar og ekki síst að koma sér á framfæri í harðri samkeppni í New York með aðstoð ráðgjafa, sérfræðinga og mentora.
Hraðallinn hentar frumkvöðlafyrirtækjum í skapandi greinum sem eru með;

  •  Tilbúna vöru eða þjónustu fyrir markað í Bandaríkjunum eða sýnishorn til reiðu sem á erindi þangað.
  •   Metnað fyrir að vaxa alþjóðlega.
  •   Öflugt frumkvöðlateymi.        
  • Löngun til að læra og auka getu sína til að þroska viðskiptahugmyndina.

Þátttökugjald í hraðlinum er 2.500 USD - íslensk yfirvöld munu styrkja fyrirtæki héðan um 1.500 USD. Þáttakendur bera sjálfir kostnað af ferðalögum og upphaldi.
UMSÓKN
Tekið er á móti umsóknum hjá Nordic Innovation House - New York

Munið að haka við Entrepreneurial Marketing Program for Nordic Creative Industries (CCI) í skjalinu áður en umsókn er staðfest.

Upphafsfundur verður í Osló 22. - 23. mars 2018. Námskeið 21. maí - 1. júní 2018.

Sérstök athygli er vakin á því að í tilefni 100 ára fullveldisafmælis Íslands styrkir Icelandic-American Chamber of Commerce fyrirtæki frá Íslandi með framlagi úr Fullveldissjóði IACC. Umsóknir um slíkt berist jafnframt í tölvupósti til aðalræðismanns Íslands í New York.