Um KMÍ
  • 14. október, Kvikmyndamiðstöð Íslands

Óskað eftir umsóknum fyrir Les Arcs European Film Festival samframleiðslumarkaðinn

14. október

Les Arcs European Film Festival kvikmyndahátíðin fer fram á Bour-Saint Maurice skíðastaðnum í Frakklandi frá 16. – 23. desember. Samhliða hátíðinni fer fram þriggja daga samframleiðslumarkaðurinn Coproduction Village þar sem 20 verkefni í þróun verða kynnt framleiðendum, söluaðilum, dreifingaraðilum og öðrum fjármögnunaraðilum. Auk þess verða 14 evrópskar kvikmyndir í eftirvinnslu sýndar sem hluti af Work-in-progress sýningum.

Umsóknarfrestur fyrir verkefni í þróun er 30. september og umsóknarfrestur fyrir kvikmyndir í eftirvinnslu er 14. október. Nánari upplýsingar ásamt umsóknareyðublöðum fyrir verkefni í þróun má nálgast hér og fyrir verkefni í eftirvinnslu má nálgast hér.