Um KMÍ
  • 20. október - 27. október

Óskað er eftir umsóknum stuttmyndaverkefna á Euro Connection

20. október

Euro Connection fer fram í 13. skipti dagana 2. og 3. febrúar 2021. Euro Connection er viðburður sem haldinn er árlega samhliða Clermont-Ferrand stuttmyndahátíðinni í Frakklandi, en um er að ræða samframleiðsluvettvang sem gefur þátttakendum tækifæri til að kynna verkefni sín og að mynda tengsl við aðra framleiðendur og fagaðila í Evrópu.

Óskað er eftir stuttmyndaverkefnum í leit að alþjóðlegu samstarfi. Kröfur eru gerðar á því að stuttmyndin sé ekki lengri en 30 mínútur, umsækjandi verður að hafa hlotið styrk fyrir verkefninu að hluta til og framleiðsla mátti ekki hafa byrjað fyrir júní 2020.  

Umsóknarfrestur er 20. október og hér má nálgast umsóknareyðublað ásamt nánari upplýsingum um viðburðinn. Umsóknareyðublaði skal skilað til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands á netfangið umsoknir@kvikmyndamidstod.is.