Um KMÍ
  • 1. september, Kvikmyndamiðstöð Íslands

Rotterdam kvikmyndahátíðin óskar eftir umsóknum fyrir CineMart

1. september

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Rotterdam óskar eftir umsóknum fyrir CineMart fjármögnunarmessuna. CineMart fer fram frá 27. til 30. janúar samhliða kvikmyndahátíðinni, sem fer fram frá 23. janúar til 3. febrúar. Umsóknarfrestur fyrir CineMart rennur út 1. september.

Gjaldgengar eru allar kvikmyndir í fullri lengd á þróunarstigi. Fullbúið handrit verður að liggja fyrir. Nánari upplýsingar um gjaldgengi og hvernig skuli sækja um er að finna á heimasíðu Rotterdam kvikmyndahátíðarinnar.