Um KMÍ
  • 1. júní - 8. júní

TIFF Filmmaker Lab óskar eftir umsóknum

1. júní / 8. júní

TIFF Filmmaker Lab er vinnustofa sem haldin er ár hvert samhliða Toronto Film Festival í Kanada. Vinnustofan sem fer fram dagana 9. - 12. september leggur sérstaka áherslu á að gefa kvikmyndagerðarfólki tækifæri til að þróa skapandi þátt kvikmyndagerðar.

Ár hvert eru 10 kanadískir og 10 alþjóðlegir umsækjendur valdir til þátttöku úr stórum hópi umsækjanda til þess að taka þátt í 4 daga vinnustofu þar sem boðið er upp á leiðsögn frá virtu kvikmyndagerðarfólki til þróunar á verkefni.

Vinnustofan er ætluð kvikmyndagerðarfólki sem hefur gert að lágmarki 2 stuttmyndir og að hámarki eina kvikmynd í fullri lengd.

Allar nánari upplýsingar um viðburðinn ásamt því hvernig skuli sækja um má finna hér. Umsóknarfrestur er til 8. júní en til 1. júní er ókeypis að sækja um.

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Toronto, Kanada, er ein fjölsóttasta hátíð heims en um hálf milljón gesta sækir hana að jafnaði í hverjum septembermánuði og um fimm þúsund manns úr alþjóðlegum kvikmyndaheimi.