Um KMÍ
Á döfinni

14.4.2020

Húsmæðraskólinn heimsfrumsýnd á Hot Docs heimildamyndahátíðinni

Húsmæðraskólinn, íslensk heimildamynd undir leikstjórn Stefaníu Thors, hefur verið valin til þátttöku á Hot Docs heimildamyndahátíðinni í Toronto í Kanada. Um mikinn heiður er að ræða, enda er Hot Docs stærsta heimildamyndahátíð Norður Ameríku. Hátíðin átti að fara fram dagana 30. apríl - 10. maí, en hefur verið frestað vegna Covid-19. Þá verður hún að mestu leiti í stafrænu formi þetta árið. 

Húsmæðraskólinn fjallar um hinn horfna heim íslensku húsmóðurinnar og hvernig hlutverk skólans hefur breyst í áranna rás. Í myndinni er gamli tíminn endurspeglaður með viðtölum við eldri nemendur skólans og með dýrmætum gömlum myndskeiðum sem sýna hversu mikilvægu hlutverki hann gegndi fyrir verðandi íslenskar húsmæður um miðbik síðustu aldar. Samhliða er fylgst með nemendum við skólann frá árinu 2016 og hversu mikil breyting hefur orðið á ímynd skólans. Vangaveltur um hlutverk húsmæðraskóla í dag, bæði hvað varðar gamaldags hlutverk kynjanna og hin dyggu grunngildi t.d. nýtni, viðhald fata, umhverfisvitund og spornun gegn matarsóun svo fátt sé nefnt. Myndin er einstök samtímaheimild um húsmæðraskólann í Reykjavík sem enn stendur opinn fyrir þá nemendur sem hafa áhuga, þrátt fyrir óvissu um framtíð og mögulega yfirvofandi lokun hans.

Myndin er skrifuð og leikstýrð af Stefaníu Thors og framleiðandi er Helgi Svavar Helgason fyrir framleiðslufyrirtækið Mús og Kött (musogkott@musogkott.com).

Hægt er að kaupa sérstakan stafrænan passa (e. All-Access Online Pass) og þar verður Húsmæðraskólinn aðgengileg frá 30. apríl. Allar nánari upplýsingar um Hot Docs má finna á heimasíðu hátíðarinnar