Um KMÍ
Á döfinni

16.10.2019

Hvítur, hvítur dagur vinnur til aðalverðlauna í Hamptons

Kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn Pálmason vann til aðalverðlaunanna sem besta leikna kvikmyndin á hinni virtu kvikmyndahátíð í Hamptons í Bandaríkjunum. Þar að auki hlaut Ída Mekkín Hlynsdóttir sérstaka viðurkenningu dómnefndar fyrir leik sinn í myndinni.

Hvítur, hvítur dagur hefur verið sérlega sigursæl á kvikmyndahátíðum frá því hún var frumsýnd á Critics‘ Week, hliðardagskrá Cannes hátíðarinnar í maí síðastliðnum, þar sem Ingvar Sigurðsson var valinn besti leikarinn fyrir leik sinn í myndinni. Nú síðast hlaut Hvítur, hvítur dagur sérstaka viðurkenningu dómnefndar í flokknum besta alþjóðlega myndin á Zurich Film Festival í Sviss. 

Hvítur, hvítur dagur er ennfremur sú íslenska kvikmynd sem er framlag Íslands til Óskarsverðlauna á næsta ári í flokki kvikmynda á erlendu tungumáli. Þá er hún einnig framlag Íslands til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs í ár, ásamt því að myndin hefur verið valin sem ein af 46 kvikmyndum í forvali fyrir Evrópsku kvikmyndaverðlaunin í ár.

Myndin var frumsýnd hérlendis þann 6. september síðastliðinn og er hún enn í sýningum í Háskólabíó.

Allar nánari upplýsingar um Hamptons kvikmyndahátíðina og verðlaunin er að finna á heimasíðu hátíðarinnar.