Um KMÍ
Á döfinni

28.5.2019

Síðasta haustið valin á Karlovy Vary kvikmyndahátíðina

Síðasta haustið, heimildamynd eftir Yrsu Roca Fannberg, hefur verið valin í keppni á alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Karlovy Vary í Tékklandi. Hátíðin, sem fer fram í 54. skipti í ár, hefst 28. júní og mun standa yfir fram til 6. júlí. Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Karlovy Vary er ein sú elsta í heiminum og er ein fárra svokallaðra „A“ hátíða. Er það því mikill heiður að vera valin til þátttöku á hátíðinni. Þetta mun vera heimsfrumsýning myndarinnar. 

Um myndina

Þar sem vegurinn endar lengst norður á Ströndum stendur bærinn Krossnes. Þar hefur fjárbúskapur verið stundaður kynslóð fram af kynslóð í hundruðir ára. Úlfar bóndi er jafn mikill hluti af landslaginu eins og Krossnesfjallið sjálft. Þetta er síðasta haustið sem hann og Oddný kona hans smala fé sínu í réttir og þar með endar búskapur í Krossnesi á Ströndum. Enn eimir eftir af gamla Íslandi en síðustu bændurnir sem stunda búskaparhætti að gömlum sið munu brátt heyra sögunni til. 

Yrsa Roca stýrir og skrifar handrit ásamt Elínu Öglu Bríem. Framleiðandi myndarinnar er Hanna Björk Valsdóttir og framleiðslufyrirtæki eru Akkeri Films og Biti aptan bæði. Stjórn kvikmyndatöku er í höndum Carlos Vásquez Méndez og Federico Delpero Bejar sér um klippingu myndarinnar, auk þess sem tónlist er eftir Gyðu Valtýsdóttur.

Nánari upplýsingar um hátíðina má finna á heimasíðu hennar.