Um KMÍ
Á döfinni

3.7.2020

Tvö íslensk verkefni fá Eurimages styrk

Tvö íslensk verkefni fengu styrk frá Eurimages að þessu sinni. Kvikmyndin Svar við bréfi Helgu eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur og Berdreymi eftir Guðmund Arnar Guðmundsson. Alls fengu 26 verkefni styrk þar af voru 20 leiknar myndir, 1 teiknuð mynd og 5 heimildamyndir, verkefnin voru styrkt um 6.137.000 evrur sem gera um 960 milljónir. 

Svar við bréfi Helgu fjallar um aldraðan bónda sem skrifar bréf til ástkonunnar sem honum bauðst að fylgja forðum tíð. Gerði hann rétt að taka skyldur sínar við sveit og eiginkonu fram yfir ástina, eða sveik hann þannig sitt eigið hjarta?

Berdreymi fjallar um ungan strák sem tekur eineltisfórnarlamb inn í hóp af ofbeldisfullum villingum. Í gegnum nýju vináttuna nær strákurinn að stíga út úr hringrás ofbeldisins og finna sinn rétta farveg.

Hér er hægt að nálgast fréttatilkynningu Eurimages í heild sinni.