Um KMÍ
Á döfinni

10.10.2019

Agnes Joy heimsfrumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Busan

Agnes Joy, nýjasta kvikmynd Silju Hauksdóttur, var heimsfrumsýnd fyrir fullum sal á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Busan í Suður-Kóreu þann 5. október síðastliðinn. Myndin hlaut góðar undirtektir en hérlendis verður hún frumsýnd þann 17. október.

Agnes Joy fjallar um mæðgurnar Rannveigu og Agnesi sem búa á Akranesi ásamt föður Agnesar, Einari. Rannveig er í tilvistarkreppu, óánægð í starfi sínu fyrir fjölskyldufyrirtækið og hjónabandið komið á algera endastöð. Samband fjölskyldunnar einkennist af stjórnsemi og spennu og Agnes er í uppreisn. Þegar leikarinn Hreinn, flytur í bæinn til þess að vinna að kvikmyndahandriti, heillast þau öll af honum, hver á sinn hátt og þroskasaga mæðgnanna hefst fyrir alvöru.

Silja Hauksdóttir leikstýrir Agnesi Joy og skrifar handritið ásamt Rannveigu Jónsdóttur og Jóhönnu Friðriku Sæmundsdóttur. Myndin er framleidd af Birgittu Björnsdóttur og Rannveigu Jónsdóttur fyrir Vintage Pictures og meðframleidd af Mikael Torfasyni og Guðbjörgu Sigurðardóttur. Í aðalhlutverkum eru þau Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Donna Cruz, Þorsteinn Bachmann og Björn Hlynur Haraldsson.

Með sölu og dreifingu erlendis fer Media Move (justyna.koronkiewicz@mediamove.pl) og Sena sér um dreifingu hennar á Íslandi.