Umsóknir

Um græna kvikmyndagerð

Sjálfbærni í kvikmyndagerð - í samræmi við markmið Kvikmyndastefnu 2020-30

Kvikmyndamiðstöð hefur það markmið að stuðla að sjálfbærni í framleiðslu íslenskra kvikmynda. Til að vinna að því markmið er nú gerð sú krafa að umsóknum um framleiðslustyrki skuli fylgja yfirlýsing um sjálfbærnimarkmiði og -stefnu framleiðslunnar.

Kvikmyndamiðstöð vill stuðla að því að starfsumhverfi kvikmyndagerðar verði í senn faglegt, sveigjanlegt og fjölskylduvænt. Með umsókn um framleiðslustyrk er þess krafist að þau áform sem framleiðslufyrirtæki ætlar að viðhafa til að stuðla að bættu starfsumhverfi framleiðslunnar séu tiltekin í yfirlýsingu um starfsumhverfi framleiðslunnar.

Fjölmargir valkostir standa nú kvikmyndagerðarmönnum til boða til að stuðla að sjálfbærni í sinni starfsemi. Stofnanir og sjóðir í Evrópu hafa þróað handbækur og vottunarkerfi, og á vettvangi Creative Europe og ESB/EES stendur yfir vinna við sameiginleg viðmið og vottun um sjálfbærni í kvikmyndagerð. Við fylgjumst grannt með þeirri þróun og munum kynna niðurstöður þeirrar vinnu þegar þær liggja fyrir.

Handbók um sjálfbæra kvikmyndaframleiðslu

Til að hvetja íslenska kvikmyndagerðarmenn áfram til góðra verka á þessu sviði höfum við því gengið til samstarfs við Trentino Film Commission um notkun á leiðbeinandi handbók um sjálfbæra kvikmyndaframleiðslu, green.film. Handbókin hentar bæði fyrir samframleiðslu og smærri verkefni, og er aðgengileg hér bæði á íslensku og ensku. (smellið hér)

Í handbókinni eru ýmis ráð og leiðbeiningar um hvernig breyta megi framleiðsluháttum og um umhverfisvæna valkosti sem hægt er að velja. Mælt er með því að byrja smátt og velja sér tiltekin áherslusvið.

Í enskri útgáfu handbókarinnar er að finna stigakerfi sem hægt er að nota til að meta hversu þungt hver og ein aðgerð vegur.

Einnig er hægt að nýta handbókina til þess að fá GREEN FILM vottun, það er vottun um umhverfisvæna og sjálfbæra kvikmyndaframleiðslu. Vottunin er samevrópskt verkfæri og var þróað á Ítalíu fyrir kvikmyndastofnanir, sjónvarpsstöðvar og svæðisbundna sjóði sem vilja styðja og hvetja evrópska framleiðendur til þess að framleiða efni á loftslagsvænan hátt.

Handbókin geymir hugmyndir sem nýtast vel þegar fyrstu skrefin að umhverfisvænni framleiðslu eru tekin, óháð því hvort stefnt er að vottun eða ekki. 

Sjá: Græn kvikmyndagerð - Handbók um sjálfbæra kvikmyndaframleiðslu

Einnig má skoða aðrar fyrirmyndir, handbækur og reiknivélar sem verið er að þróa og hægt að styðjast við:

Albert (UK) - Reiknivél 

Carbon Clap/Ecoprod (FR) - Reiknivél

Eureca (EU) - Vottun

Green Film (EUR) - Vottun

Green Producers Club (Skandinavía) 

Hallbar Film (SE) - Vottun

KlimAktiv-Greenshooting-CO₂-Calculator (Bridging Instrument for international CoProductions in AT, DE, IT, CH):

PEAR / PGA Green (USA) - Reiknivél

Seco2 / Secoya (FR) - Reiknivél


Tenerife Film Commission Carbon calculator (ES) - Reiknivél