Hátíðir og verðlaun

Íslenskar kvikmyndir á hátíðum 2021 - alþjóðleg verðlaun

Íslenskar kvikmyndir hafa unnið til fjölmargra verðlauna á alþjóðlegum vettvangi. Hér að neðan er að finna samantekt á verðlaunum fyrir árið 2021.

Allar ábendingar vegna skráningar um verðlaun eru vel þegnar og óskast sendar á info@kvikmyndamidstod.is

Samtals hafa íslenskar kvikmyndir unnið til 29 verðlauna á alþjóðlegum vettvangi árið 2021. Hér að neðan er að finna samantekt á þeim.

Leiknar kvikmyndir:

Birta (leikstjóri: Bragi Þór Hinriksson)

Kristín Erla Pétursdóttir vann til DIAMANT verðlaunanna sem besta unga leikkonan (Best Child Actor) á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni SCHLINGEL sem fór fram í Þýskalandi dagana 9. - 16. október.

Margrét Júlía Reynisdóttir var valin af dómnefnd sem besta unga leikkonan á barnakvikmyndahátíðinni KIKIFe, sem fór fram dagana 18. - 24. október í Þýskalandi. 

Dýrið (leikstjóri: Valdimar Jóhannsson)

Var valin frumlegasta myndin í Un Certain Regard keppninni á Cannes kvikmyndahátíðinni sem fór fram dagana 6. - 17. júlí í Cannes Frakklandi. 

Var valin besta myndin á Sitges Fantasy Film Festival á Spáni og aðalleikkonan Noomi Rapace var valin besta leikkonan.

Peter Hjorth og Fredrik Nord unnu til verðlauna fyrir tæknibrellur á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum.

Leynilögga (leikstjóri: Hannes Þór Halldórsson)

Vann til verðlauna sem besta frumraunin (Prize of the Friends) á Norrænum kvikmyndadögum í Lübeck í Þýskalandi sem fór fram dagana 3. - 7. nóvember.

Þorpið í bakgarðinum (leikstjóri: Marteinn Þórsson)

Vann til verðlauna fyrir bestu kvikmyndina og besta handritið á Vienna Independent Film Festival sem fór fram dagana 1. - 4. nóvember.

Heimildamyndir:

A Song Called Hate (leikstjóri: Anna Hildur Hildibrandsdóttir)

Var valin besta heimildamyndin í flokki lengri mynda á SeeYouSound tónlistarkvikmyndahátíðinni sem fram fór fram dagana 19. - 25. febrúar á Ítalíu.

Var valin besta norræna heimildamyndin á Oslo Pix hátíðinni sem fór fram í Noregi dagana 31. maí - 10. júní

Humarsúpa (leikstjórar: Pepe Andreu og Rafael Molés)

Vann til CGIL Prize for the Close Up - La Sortie de l'Usine fyrir bestu heimildamyndina á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Bergamo Film Meeting sem fór fram dagana 24. apríl - 2.maí. 

Hækkum rána (leikstjóri: Guðjón Ragnarsson)

Hlaut tvenn verðlaun á alþjóðlegu kvikmyndahátðinni Filem'On sem fór fram í Belgíu dagana 27. október - 6. nóvember. Valin besta myndin af bæði aðal dómnefnd hátíðarinnar og einnig af dómnefnd skipuð börnum á aldrinum 8-13 ára. 

Hvunndagshetjur (leikstjóri: Magnea Björk Valdimarsdóttir)

Magnea Björk Valdimarsdóttir var kosin besti kvenkyns kvikmyndagerðarmaðurinn á Barcelona International Film Festival í október.

Valin besta heimildamynd í fullri lengd á Istanbul Film Awards í nóvember.

Valin besta heimildamynd í fullri lengd á Eastern Europe International Movie Awards í Tyrklandi í nóvember.

Valin besta heimildamynd í fullri lengd á Auber International Film Festival í Frakklandi í október.

Stuttmyndir:

Ágústhiminn (leikstjóri: Jasmin Tenucci)

Hlaut sérstaka viðurkenningu eða „special mention“ í stuttmyndaflokki Cannes kvikmyndahátíðarinnar sem fór fram dagana 6. - 17. júlí í Cannes Frakklandi.

Dalía (leikstjóri: Brúsi Ólason)

Hlaut sérstök verðlaun dómnefndar á Euregion hátíðinni sem fór fram í Hollandi dagana 1. - 7. mars.

Eftirsjón (leikstjóri: Björn Rúnarsson)

Valin besta íslenska nemamyndin á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem fór fram dagana 30. september - 10. október.

Eggið (leikstjóri: Haukur Björgvinsson)

Vann verðlaunin Best Sci-Fi/Fantasy á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Bolton, Englandi, 6. - 17. október.

Eldhús eftir máli (leikstjórar: Atli Arnarsson og Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir)

Vann Sprettfiskinn á Stockfish Film Festival, 20. - 30. maí. 

Selshamurinn, (leikstjóri: Ugla Hauksdóttir)

Hlaut verðlaunin „Best International Fiction“ á Leiria kvikmyndahátíðinni í Portúgal, 27. - 30. maí.

Hlaut verðlaunin „Best Original Soundtrack“ á kvikmyndahátíðinni Dieciminuti á Ítalíu, 3. - 7. ágúst. Herdís Stefánsdóttir samdi tónlist. 

Var valin besta stuttmyndin á WIFF kvikmyndahátíðinni í Litháen, 27. - 29. ágúst.

Síðasti séns (leikstjóri: Ásta Sól Kristjánsdóttir)

Hlaut sérstaka viðurkenningu dómnefndar í flokki íslenskra nemamynda á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem fór fram dagana 30. september - 10. október.

Leikið sjónvarpsefni:

Verbúð(leikstjórar: Gísli Örn Garðarsson, Björn Hlynur Haraldsson, María Reyndal)

Vann til aðalverðlauna í alþjóðlegri keppni á Series Mania sjónvarpsþáttahátíðinni í Lille í Frakklandi, 26. ágúst - 2. september. 

Hlaut dómnefndarverðlaun á Serielizados Fest á Spáni, 20 - 25. október.