Umsóknir

Styrkir til kvikmyndagerðar

Íslenskum kvikmyndagerðarmönnum standa ýmsir kostir til boða þegar leitað er eftir styrkjum sem eru til þess fallnir að hjálpa til við fjármögnun kvikmynda.

Meðal sjóða sem hægt er að sækja um styrki til eru Kvikmyndasjóður, Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn, Creative Europe - MEDIA og Eurimages, auk þess sem hægt er að sækja um 25%-35% endurgreiðslur vegna framleiðslukostnaðar hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands.

Sótt er um styrki í umsóknargátt Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.

Hér má finna helstu upplýsingar um hvað þarf að hafa í huga þegar undirbúningur umsókna til Kvikmyndasjóðs fer fram.

Jafnframt má finna hlekki á fyrrnefnda samframleiðslusjóði. Athugið að umsóknarfrestir, kröfur um fylgigögn og lengd umsagnarferla eru mismunandi eftir sjóðum og því ráðlegt að kynna sér þessar upplýsingar til hlítar.