Verk í vinnslu

Um verk í vinnslu

Upplýsingar um þau verkefni sem eru í vinnslu á hverjum tíma.

Hér er að finna upplýsingar um þau verkefni sem hlotið hafa styrk eða vilyrði frá Kvikmyndamiðstöð en eru á mismunandi stigum vinnslu; kvikmyndir í fullri lengd, leikið sjónvarpsefni, heimildamyndir og stuttmyndir.

Í valmyndinni að ofan má skoða þessi verkefni, skipt eftir tegundum. Annarsvegar þau sem eru í framleiðslu (tökur eða eftirvinnsla stendur yfir) og hinsvegar þau sem eru í undirbúningi (hafa hlotið vilyrði, fjármögnun og önnur þróun stendur yfir eða fyrirhugað tökutímabil framundan).

Athugið að á hverjum tíma er unnið að ýmis konar kvikmynda- eða sjónvarpsverkefnum án aðkomu Kvikmyndamiðstöðvar. Þau verkefni eru ekki skráð hér.

Lista yfir þau verk sem hlotið hafa styrk eða vilyrði frá Kvikmyndamiðstöð má skoða hér, skipt eftir árum.