Um KMÍ
Á döfinni

4.4.2018

Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík fer fram frá 5. – 15. apríl

Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík verður haldin í Bíó Paradís í fimmta sinn frá 5. – 15. apríl 2018. Hátíðin hefur fest sig í sessi sem árlegur menningarviðburður. Verndari hátíðarinnar er Vigdís Finnbogadóttir.

Hlutverk barnakvikmyndahátíðarinnar er að bjóða börnum, unglingum og fjölskyldum þeirra aðgang að áhugaverðum og vönduðum barna- og unglingakvikmyndum víðs vegar að úr heiminum sem annars eru ekki teknar til sýninga á Íslandi. Hátíðin eykur fjölbreytni í kvikmyndaflóru fyrir börn, eflir kvikmyndalæsi barna- og unglinga og er tækifæri fyrir alla fjölskylduna að koma á metnaðarfulla viðburði og njóta dagskrár í hæsta gæðaflokki.

Allar nánari upplýsingar um hátíðina, sýningar og viðburði hennar er að finna á heimasíðu Bíó Paradísar.