Um KMÍ
Á döfinni

4.10.2018

Andið eðlilega sigursæl á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum – Kristín Þóra valin besta leikkonan í Lissabon

Andið eðlilega, kvikmynd Ísoldar Uggadóttur, hefur að undanförnu unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna. Nýverið var Kristín Þóra Haraldsdóttir, aðalleikkona myndarinnar, valin besta leikkonan á Queer Lisboa kvikmyndahátíðinni í Lissabon.

Myndin vann einnig til áhorfendaverðlauna á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Aþenu, vann til áhorfendaverðlauna á Queer Screen kvikmyndahátíðinni í Sydney, var valin besta myndin á Faroe Islands Minority Film Festival í Þórshöfn í Færeyjum og Ísold Uggadóttir vann til verðlauna fyrir bestu frumraun leikstjóra á Traverse City kvikmyndahátíðinni í Bandaríkjunum. Myndin hefur nú unnið til samtals átta alþjóðlegra verðlauna.

Næst á dagskrá er þátttaka á Hamptons kvikmyndahátíðinni í Bandaríkjunum, þar sem Ísold verður viðstödd.

Um myndina

Andið eðlilega fléttar saman sögum tveggja ólíkra kvenna, hælisleitanda frá Gíneu-Bissá og ungrar íslenskrar konu sem hefur störf við vegabréfaskoðun á Keflavíkurflugvelli. Leiðir þeirra liggja saman á örlagastundu í lífi beggja og tengjast þær óvæntum böndum.

Ísold Uggadóttir er leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar. Með aðalhlutverk fara leikkonurnar Kristín Þóra Haraldsdóttir og Babetida Sadjo.

Skúli Fr. Malmquist framleiðir Andið eðlilega fyrir hönd Zik Zak kvikmynda, en meðframleiðendur eru þær Inga Lind Karlsdóttir, Lilja Ósk Snorradóttir og Birna Anna Björnsdóttir, auk meðframleiðenda frá Belgíu og Svíþjóð. 

Andið eðlilega var heimsfrumsýnd á hinni virtu Sundance kvikmyndahátíð í Bandaríkjunum, þar sem Ísold Uggadóttir var valin besti erlendi leikstjórinn. Myndin var frumsýnd á Íslandi 2. mars síðastliðinn.

The Match Factory sér um sölu og dreifingu á heimsvísu.