Um KMÍ
Á döfinni

15.10.2018

Andið eðlilega verðlaunuð í Hamptons

Andið eðlilega, kvikmynd Ísoldar Uggadóttur, hlaut Brizzolara Family Foundation verðlaunin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Hamptons í Bandaríkjunum, þar sem myndin tók þátt í Films of Conflict & Resolution hluta hátíðarinnar. Verðlaunin innihalda m.a. 5000 dollara peningaverðlaun. Ísold var viðstödd hátíðina og veitti verðlaununum viðtöku.

Andið eðlilega hefur nú unnið til níu alþjóðlegra verðlauna. Myndin var heimsfrumsýnd á hinni virtu Sundance kvikmyndahátíð í Bandaríkjunum, þar sem fyrstu verðlaunin unnust. Ísold Uggadóttir var þar valin besti erlendi leikstjórinn. Hún hefur alls unnið til fjögurra verðlauna á kvikmyndahátíðum í Bandaríkjunum og hefur einnig unnið til verðlauna í Portúgal, Grikklandi, Ástralíu, Svíþjóð og Færeyjum.

Andið eðlilega fléttar saman sögum tveggja ólíkra kvenna, hælisleitanda frá Gíneu-Bissá og ungrar íslenskrar konu sem hefur störf við vegabréfaskoðun á Keflavíkurflugvelli. Leiðir þeirra liggja saman á örlagastundu í lífi beggja og tengjast þær óvæntum böndum.

Ísold Uggadóttir er leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar. Með aðalhlutverk fara leikkonurnar Kristín Þóra Haraldsdóttir og Babetida Sadjo.

Skúli Fr. Malmquist framleiðir Andið eðlilega fyrir hönd Zik Zak kvikmynda, en meðframleiðendur eru þær Inga Lind Karlsdóttir, Lilja Ósk Snorradóttir og Birna Anna Björnsdóttir, auk meðframleiðenda frá Belgíu og Svíþjóð. 

The Match Factory sér um sölu og dreifingu á heimsvísu.