Um KMÍ
Á döfinni

12.8.2019

Bergmál heimsfrumsýnd á Locarno hátíðinni

Bergmál, nýjasta kvikmynd leikstjórans og handritshöfundarins Rúnars Rúnarssonar, var heimsfrumsýnd í gær fyrir fullum sal á kvikmyndahátíðinni Locarno sem stendur yfir til 17. ágúst í Sviss. Kvikmyndin var valin í aðalkeppni hátíðarinnar þar sem keppt er um Gyllta hlébarðann eða Pardo d‘Oro, ein virtustu kvikmyndaverðlaun sem veitt eru ár hvert.

Í kjölfar frumsýningarinnar hafa fyrstu dómarnir litið dagsins ljós m.a. frá hinum virtu kvikmyndatímaritum Screen Daily og Variety

Bergmál er kvikmynd þar sem örsögur úr samtímanum fléttast saman á ljóðrænan hátt og mynda samtímaspegil frá Íslandi í aðdraganda jóla. Myndin fer í almennar sýningar hér á Íslandi fyrir komandi jól. Franska fyrirtækið Jour2féte sér um sölu og dreifingu erlendis en Sena sér um dreifingu á Íslandi.

Bergmál stikla

Þátttaka á svokölluðum A-lista kvikmyndahátíðum eins og Locarno er engin nýlunda fyrir leikstjórann Rúnar Rúnarsson. Síðan hann gerði myndina „Síðasti Bærinn“ sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna árið 2006 hafa kvikmyndir hans ferðast um helstu hátíðir heimsins eins og Cannes, Toronto, Sundance, San Sebastian og unnið yfir 130 alþjóðleg kvikmyndaverðlaun.

Undirbúningur að Bergmáli hófst að fullu árið 2018 en þá var verkefnið valið fyrst íslenskra verkefna til að taka þátt í Cannes Atelier, sem er fyrir kvikmyndir í leit að fjármögnun og stór hluti af aðalhluta Cannes kvikmyndahátíðarinnar. Síðan þá hefur verið mikil eftirvænting fyrir myndinni sem nú um ári seinna hefur nýlokið eftirvinnslu.

Bergmál

Leikstjóri/handrit: Rúnar Rúnarsson
Framleiðendur: Live Hide, Lilja Ósk Snorradóttir, Rúnar Rúnarsson
Kvikmyndataka: Sophia Olson
Sviðsmynd: Gus Olafsson
Búningahönnun: Júlíanna Lára Steingrímsdóttir
Klipping: Jacob Secher Schulsinger
Hljóðhönnun: Gunnar Óskarsson
Tónlist: Kjartan Sveinsson
Leikaraval: Vigfús Þormar Gunnarsson
Framleiðslufyrirtæki: Nimbus Ísland, Pegasus Pictures
Meðframleiðslufyrirtæki: Jour2Fête, Bord Cadre, MP Productions