Um KMÍ
Á döfinni

2.2.2017

European TV Drama Lab óskar eftir umsóknum

European TV Drama Lab óskar eftir umsóknum. Vinnustofan, sem er á vegum Erich Pommer Institut í samstarfi við MediaXchange, fer fram í Berlín í Þýskalandi dagana 9. – 14. maí og 30. október – 5. nóvember 2017. Umsóknarfrestur rennur út þann 13. mars 2017.

Vinnustofan er ætluð reyndum fagaðilum og er sérstaklega sniðin fyrir handritshöfunda, framleiðendur og starfsfólk sjónvarpsstöðva. Fjöldi sérfræðinga munu miðla af reynslu sinni um hvernig skuli framleiða vel heppnaða sjónvarpsþáttaröð.

Nánari upplýsingar um vinnustofuna ásamt umsóknareyðublaði má nálgast hér.