Um KMÍ
Á döfinni

21.6.2017

Glocal in Progress óskar eftir umsóknum - San Sebastian

Glocal in Progress, sem haldið er af San Sebastian kvikmyndahátíðinni, fer fram dagana 25.-27. september. Umsóknarfrestur er til 30. júní. 

Um er að ræða viðburð sem haldinn er fyrir evrópsk verkefni sem ekki eru á hegemónískum tungumálum (þ.e. á öðrum tungumálum en ensku, frönsku, þýsku, ítölsku, rússnesku eða spænsku). Ætlunin er að auka sýnileika slíkra verkefna til þess að m.a. stuðla að samframleiðslu. 

Alls verða valin til þáttöku þrjú verk sem eru á eftirvinnslustigi og munu þau keppa um Glocal in Progress Industry Award.

Allar nánari upplýsingar um viðburðinn og því hvernig sækja skuli um má finna hér