Um KMÍ
Á döfinni

15.7.2020

IceDocs heimildamyndahátíðin fer fram dagana 15. - 19. júlí

Alþjóðlega heimildamyndahátíðin IceDocs hefst í dag á Akranesi og stendur til sunnudagsins 19. júlí. Á hátiðinni verður fjöldi alþjóðlegra heimildamynda sýndar auk ýmissa sérviðburða. 

Dagskrá IceDocs má finna á hér, en frítt er á kvikmyndasýningar og marga viðburði hátíðarinnar. Mælt er með því að fólki taki frá miða á netinu vegna fjöldatakmarkanna. Þá er hægt að kaupa sérstakan stafrænan aðgang að hátíðinni sem veitir aðgang að nær öllum kvikmyndum hátíðarinnar heima í stofu í þrjár vikur frá fyrsta degi hátíðarinnar.

Á meðal sérviðburða má nefna heimsókn frá Alex Sharieff verkefnastjóra B2B Doc (Baltic to Black Sea Documentary Network) sem kynnir samtökin fyrir íslensku kvikmyndagerðarfólki. Þá verður einnig sýnd ný og endurbætt útgáfa af myndum frumkvöðulsins Óskars Gíslasonar í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands.

Baltic to Black Sea Documentary Network - fimmtudaginn 16.júlí kl.12:30 á skrifstofu IceDocs, Suðurgötu 57, Akranesi

B2B Doc eru samtök kvikmyndagerðamanna sem hafa það að markmiði að styrkja bönd fólks í kvikmyndagerð þvert á landamæri. Samtökin aðstoða kvikmyndagerðarfólk við að undirbúa kynningar á markaðstorgum, kemur á samstarfi kvikmyndagerðarfólks og framleiðenda/dreifingaraðila og styður þær myndir sem framleiddar eru í samstafinu til ferða á samframleiðslu markaði og kvikmyndahátíðir. Samtökin rukka ekkert félagsgjald.

Samtökin hafa nú sérstakan áhuga á styrkja sambandið við kvikmyndagerðarfólk af Norðurslóðum, sérstaklega með framleiðendur heimildamynda í huga þar sem er markmiðið er að skapa tækifæri til samframleiðslu á milli íslenskra framleiðenda og framleiðanda frá aðildarríkjum B2B samtakanna.

Frekari upplýsingar um B2B Doc má finna hér

Brautryðjandinn Óskar Gíslason - fimmtudaginn 16.júlí kl.19:30 í Bíóhöllinni, Akranesi

Í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands fagnar IceDocs starfi frumkvöðulsins Óskars Gíslasonar með sýningu á nýrri og endurbættri útgáfu af myndum hans sem Kvikmyndasafnið hefur gert upp sérstaklega við þetta tilefni.

Sýningin hefst á fyrstu fréttamynd Óskars af því þegar gengið var til kosninga um stofnun lýðveldisins árið 1944, sem er í senn fyrsta fréttamynd Íslands. Síðan er sýnd ein þekktasta mynd Óskars Björgunarafrekið við Látrabjarg (1949). Tilviljanir réðu því að hann náði raunverulegum myndum af skipsbjörgun við erfiðar aðstæður við tökur á myndinni í desember 1948.

Myndskeiðin af björguninni gera myndina að einni merkilegustu heimildarmynd Íslandssögunnar og spurðist af henni fljótlega út fyrir landsteinana. Voru gerðar útgáfur af henni á fjölda tungumála og hún sýnd víða, en hún er meðal annars líklega fyrsta myndin til að vera sýnd á færeysku. Það er því með miklu stolti sem að við sýnum hana á IceDocs í betri gæðum en nokkru sinni fyrr. 

Allar nánari upplýsingar um hátíðina og viðburði má finna á heimasíðu hennar.