Um KMÍ
Á döfinni

23.3.2017

La Chana valin á Hot Docs hátíðina

La Chana, spænsk/íslensk/bandaríska heimildamyndin undir leikstjórn Luciju Stojevic, hefur verið valin til þátttöku á Hot Docs heimildamyndahátíðinni í Toronto í Kanada. Hátíðin fer fram frá 27. apríl til 7. maí. Um mikinn heiður er að ræða, enda er Hot Docs stærsta heimildamyndahátíð Norður Ameríku.

La Chana vann áhorfendaverðlaun hinnar virtu heimildamyndahátíðar IDFA í Amsterdam síðla árs 2016 og hefur verið valin til þátttöku á 16 alþjóðlegum kvikmyndahátíðum auk þess að fá boð um sýningar hjá sex sjónvarpsstöðvum víðs vegar um heiminn.

La Chana fjallar um sígauna flamenco dansarann Antonia Santiago Amador, þekkt sem La Chana, katalónska konu sem var ein stærsta stjarna flamenco heimsins á 7. og 8. áratug síðustu aldar. La Chana er fylgt eftir í aðdraganda lokasýningar hennar árið 2013 og farið í saumana á því hvað það var sem leiddi til þess að hún hætti skyndilega á hátindi ferilsins og kom ekki fram í 30 ár.

La Chana er meðframleidd af Grétu Ólafsdóttur og Susan Muska fyrir Bless Bless Productions.

Myndin hlaut fyrirtaks dóm hjá hinu virta tímariti The Hollywood Reporter þegar hún var sýnd á IDFA hátíðinni.

Nánari upplýsingar um myndina er að finna á heimasíðu framleiðslufyrirtækisins Noon Films, heimasíðu New York Women in Film and Television og á Kvikmyndavefnum.