Um KMÍ
Á döfinni

12.3.2020

Saga Borgarættarinnar fagnar 100 ára afmæli með kvikmyndatónleikum

Kvikmyndin Saga Borgarættarinnar markar upphaf kvikmyndagerðar á Íslandi. Myndin var gerð af Nordisk Films Kompagni eftir samnefndri skáldsögu Gunnars Gunnarssonar sem færði honum frægð og frama í Danmörku. Hún var að stærstum hluta tekin upp á Íslandi haustið 1919 en frumsýnd ári síðar og telst til stórmynda norrænnar kvikmyndasögu á tíma þöglu myndanna.

Í tilefni 100 ára afmælis hennar er efnt til hátíðarsýninga í Hofi á Akureyri þann 3. maí og Eldborg í Hörpu þann 10. maí. Sýnd verður ný stafræn endurgerð Kvikmyndasafns Íslands á myndinni með frumsaminni tónlist eftir Þórð Magnússon í lifandi flutningi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Hljómsveitarstjóri er Petri Sakari. Tónleikarnir njóta stuðnings Styrktarsjóðs Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns.

Leikstjóri myndarinnar var Gunnar Sommerfeldt sem einnig lék eitt aðalhlutverkið. Aðalleikarar voru flestir danskir nema Guðmundur Thorsteinsson, betur þekktur sem myndlistarmaðurinn Muggur, en hann lék aðalsögupersónuna, Ormarr Örlygsson, og þótti fara á kostum í myndinni.

Saga Borgarættarinnar vakti gríðarlega athygli og var sýnd í allt að fimmtán löndum þegar hún kom út. Hérlendis var hún frumsýnd snemma árs 1921 og hefur allar götur síðan verið hjartfólgin Íslendingum. Löngu eftir tilkomu talmynda var hún sýnd reglulega í Nýja Bíói fyrir fullu húsi þar til Sjónvarpið tók við sýningarkeflinu um 1970.

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur á undanförnum árum sérhæft sig í flutningi kvikmyndatónlistar, bæði á sýningum og til upptöku. Þetta er eitt stærsta verkefni hennar af þeim toga enda um að ræða þriggja tíma langa þögla kvikmynd. Hljómsveitin nýtur traustrar leiðsagnar hins rómaða finnska hljómsveitarstjóra Petri Sakari. Hann þarf vart að kynna fyrir íslenskum tónlistarunnendum því að hann var aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands um árabil og hefur stýrt mörgum stórum tónlistarverkefnum um allan heim. Einstakur listviðburður sem ekki verður endurtekinn!