Um KMÍ
Á döfinni

27.11.2017

Undir trénu vann sérstök dómnefndarverðlaun í Denver

Undir trénu, nýjasta kvikmynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, vann sérstök dómnefndarverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Denver í Bandaríkjunum. Hafsteinn Gunnar leikstjóri og annar handritshöfunda myndarinnar og Grímar Jónsson framleiðandi myndarinnar voru viðstaddir hátíðina og veittu verðlaununum viðtöku. Þetta eru fjórðu alþjóðlegu verðlaunin sem myndin hlýtur.

Undir trénu var nýverið valin sem framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2018.

Myndin var frumsýnd hérlendis þann 6. september síðastliðinn og hafa tæplega 42.000 manns séð hana í íslenskum kvikmyndahúsum.

Um myndina

Undir trénu fjallar um Agnesi sem grípur Atla við að horfa á gamalt kynlífsmyndband, hendir honum út og meinar honum að umgangast 4 ára dóttur þeirra. Atli flytur inn á foreldra sína sem eiga í deilu við fólkið í næsta húsi. Stórt og fagurt tré sem stendur í garði foreldranna skyggir á garð nágrannanna, sem eru orðnir langþreyttir á að fá ekki sól á pallinn. Á sama tíma og Atli berst fyrir umgengni við dóttur sína verður deilan um tréð sífellt harðari. Eignaspjöll eru framin og gæludýr hverfa á dularfullan hátt þegar sögusagnir um mann með keðjusög fara á kreik.

Hafsteinn Gunnar Sigurðsson (Á annan vegParís norðursins) leikstýrir Undir trénu og skrifar handritið ásamt Huldari Breiðfjörð. Framleiðendur myndarinnar eru Grímar Jónsson, Sindri Páll Kjartansson og Þórir Snær Sigurjónsson fyrir hönd Netop Films á Íslandi og erlendir meðframleiðendur koma frá Danmörku, Póllandi og Þýskalandi.

Með sölu og dreifingu erlendis fer fyrirtækið New Europe Film Sales (jan@neweuropefilmsales.com).