Um KMÍ
  • 1. desember

ACE Producers óskar eftir umsóknum fyrir ACE Animation Special

1. desember

ACE Producers óskar eftir umsóknum fyrir ACE Animation Special, vinnustofu sem fer fram dagana 21. - 26. mars 2021 í Dingle, Írlandi. Vinnustofan miðar að reyndum framleiðendum sem vilja auka við þekkingu sína í að þróa og framleiða teiknimyndir í fullri lengd fyrir alþjóðlegan markað. 

Umsóknarfrestur er 1. desember og allar nánari upplýsingar um vinnustofuna og skráningu má finna hér

ACE Producers eru samtök sjálfstæðra kvikmyndaframleiðenda frá Evrópu og fleiri löndum.