Um KMÍ
  • 23. september - 24. október

CEE Animation vinnusmiðjan óskar eftir umsóknum

24. október

Íslenskum framleiðendum og kvikmyndagerðarmönnum gefst nú kostur á að sækja CEE-teiknimyndavinnusmiðjuna. Hægt er að sækja um með stuttmynd, sjónvarpsþátt, teiknimynd í fullri lengd eða mynd með teiknimyndaívafi á þróunarstigi. Einnig býðst framleiðendum sem ekki eru með verkefni á þróunarstigi að taka þátt. 

Umsóknarfrestur er 24. október. Vinnusmiðjan spannar 4-8 daga í senn og er haldin í fernu lagi, í Ljublana í Slóveníu, Bratislava í Slóvakíu og á vefnum.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um umsóknarferlið og vinnusmiðjuna hér