Um KMÍ
  • 22. október, Kvikmyndamiðstöð Íslands

FIPADOC óskar eftir umsóknum fyrir New Talent Selection

22. október

Alþjóðlega heimildamyndahátíðin FIPADOC óskar eftir umsóknum fyrir New Talent Selection, sem er sérstaklega ætlað skólaheimildamyndum. FIPADOC hátíðin fer fram frá 22. – 27. janúar. Umsóknarfrestur rennur út 22. október.

Gjaldgengar eru heimildamyndir frá nemendum í kvikmynda- og listaskólum, háskólum og öðrum sértækum stofnunum sem kenna hljóð- og myndmiðlun. Tekið er á móti öllum tegundum heimildamynda. Gerð er krafa um að myndin sé með enskum texta ef hún er á íslensku en annars eru myndir á frönsku og ensku gjaldgengar án texta.

Alla nánari upplýsingar um FIPADOC hátíðina, New Talent Selection og hvernig skuli sækja um þátttöku er að finna hér og á heimasíðu FIPADOC.