Um KMÍ
Á döfinni

24.2.2023

Á ferð með mömmu frumsýnd á Íslandi

Á ferð með mömmu, eftir Hilmar Oddsson, er frumsýnd í íslenskum kvikmyndahúsum 24. febrúar.

https://www.youtube.com/watch?v=Nd28_ET6pb4

„Þegar móðir Jóns og hans mesti áhrifavaldur fellur frá verða alger umskipti í lífi hans. Með uppáklætt líkið í aftursætinu og hundinn Brésnef við hlið sér tekst hann á hendur ferð þvert yfir landið til að heiðra hennar síðustu ósk. En mamma hefur ekki sagt sitt síðasta.“

Hilmar Oddsson leikstýrir og skrifar handrit. Með aðalhlutverk fara Þröstur Leó Gunnarsson, Kristbjörg Kjeld, Tómas Lemarquis og Hera Hilmars. Framleiðandi er Hlín Jóhannesdóttir hjá Ursus Parvus.