Um KMÍ
Á döfinni

8.2.2022

Á yfirborðinu hlýtur sérstaka viðurkenningu dómnefndar í Clermont-Ferrand

Íslenska stuttmyndin Á yfirborðinu eftir Fan Sissoko hlaut sérstaka viðurkenningu dómnefndar í alþjóðlegri keppni á hinni virtu stuttmyndahátíð í Clermont-Ferrand í Frakklandi. Hátíðin fór fram dagana 28. janúar til 5. febrúar.

Hér má sjá viðtal við Fan á meðan á hátíðinni stendur, þar sem hún ræðir við blaðamanninn Laurence Boyce um myndina.  

Á yfirborðinu er teiknimynd sem segir frá Ada, ungri konu af erlendum uppruna, sem fer að synda í íslenskum sjó og hugleiðir það að ala upp barn í framandi landi. Þegar hún fer í ískalt vatnið endurupplifir hún áfall meðgöngunar og fæðingarþunglyndi sitt. Brátt venst hún vatninu. Að vera í náttúrunni og horfast í augu við óttan sinn hjálpar henni.

Trailer

Fan Sissoko leikstýrir og skrifar handritið að myndinni sem var frumsýnd þann 1. ágúst síðastliðinn á listahátíðinni Fringe of Colours Films.

Nánari upplýsingar um Clermont-Ferrand stuttmyndahátíðina má finna á vef hátíðarinnar.