Ævintýri Tulipop tilnefnd til Venice TV Awards
Teiknimyndaþáttaröðin Ævintýri Tulipop, framleidd af Tulipop Studios í samstarfi við Símann, hefur hlotið tilnefningu til Venice TV Awards sem veitt eru í Feneyjum. Þættirnir eru tilnefndir í flokki framúrskarandi teiknimyndaefni ársins en aðrar þáttaraðir sem hlutu tilnefningu eru The Smurfs Season 3 (Belgía), Odo (Channel 5, Bretland), og Very Small Creatures (Aardman, Sky, Bretland) og Luka and the Flower of the Sun (NHK, Japan) sem hlaut verðlaunin að þessu sinni.
Ævintýri Tulipop er 52 þátta teiknimyndaþáttaröð sem byggir á íslenska hugverkinu Tulipop og notið hefur mikilla vinsælda hér á landi sem og erlendis. Allir þættirnir eru nú aðgengilegir í Sjónvarpi Símans Premium, auk þess sem fyrstu 13 þættirnir eru í sýningu á RÚV.
Alþjóðlegt samstarf og framleiðsla
Yfir 100 manns á Íslandi, Spáni og Ítalíu komu að framleiðslu þáttaraðarinnar. Hún var framleidd í nánu samstarfi við Símann og naut stuðnings Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, Nordisk Film & TV Fond og endurgreiðslu menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.
Þáttaröðin hefur þegar verið seld til yfir 30 landa utan Íslands, þar á meðal Noregs, Finnlands, Frakklands, Ítalíu, Bretlands, Mið-Austurlanda og Kanada.
Mikilvæg viðurkenning
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Tulipop Studios og framleiðandi þáttaraðarinnar, segir:
„Það er frábær viðurkenning að Ævintýri Tulipop skuli hljóta þessa tilnefningu. Hún staðfestir gæði þáttanna sem hafa slegið í gegn meðal barna og fjölskyldna. Það er mikil þörf fyrir íslenskt barnaefni sem miðlar jákvæðum skilaboðum um vináttu, fjölbreytileika og náttúruna, og við erum ótrúlega stolt af því að þessi saga úr íslenskum ævintýraheimi hafi nú fengið alþjóðlega viðurkenningu.“
Um þáttaröðina
Ævintýri Tulipop byggir á hinu séríslenska ævintýraheimi Tulipop, sem er hugarfóstur Signýjar Kolbeinsdóttur, teiknara og vöruhönnuðar, sem stofnaði fyrirtækið Tulipop með Helgu Árnadóttur. Ævintýraheimurinn hefur notið mikilla vinsælda bæði hérlendis og erlendis í gegnum teiknimyndir, vörur, bækur og tónlist. Í þáttaröðinni fylgjast áhorfendur með vinunum Fredda, Búa, Gló, Maddý og Herra Barra sem takast á við fjölbreytt ævintýri á ævintýraeyjunni Tulipop. Þættirnir eru fullir af húmor, tónlist og jákvæðum boðskap sem höfðar jafnt til barna sem fullorðinna.