Um KMÍ
Á döfinni

18.3.2022

Allra síðasta veiðiferðin frumsýnd á Íslandi

Allra síðasta veiðiferðin eftir Örn Marinó Arnarson og Þorkel Harðarson er frumsýnd hérlendis í dag, þann 18. mars. Myndin er sjálfstætt framhald Síðustu veiðiferðarinnar og er sýnd í Laugarásbíói, Smárabíói, Háskólabíói, Borgarbíói og Sambíóunum í Keflavík.  

Myndin segir frá vinahóp sem fer í sinn árlega laxveiðitúr til að slaka á í sveitinni og hafa það gott. Nýliðarnir í hópnum reyna virkilega á þanþolið og túrinn fer hratt og örugglega í vaskinn út af nýjum og gömlum syndum.

Allra síðasta veiðiferðin - trailer

Þeir Örn Marinó og Þorkell skrifuðu handritið og leikstýrðu, en þeir eru jafnframt framleiðendur myndarinnar. Með helstu hlutverk fara Þorsteinn Bachmann, Sigurður Sigurjónsson, Jóhann Sigurðsarson, Hilmir Snær Guðnason, Þröstur Leó Gunnarsson, Halldór Gylfason, Gunnar Helgason, Halldóra Geirharðsdóttir, Ylfa Marín Haraldsdóttir og Edda Björg Eyjólfsdóttir.